Ég er búin að standast nokkrar freistingar um helgina.
1. Fór í göngutúr með mákonu minni á laugardaginn, fórum til
systur minnar, hún kom við í bakaríi og keypti snúða, kleinur og
kleinuhringi. Ég fékk mér ekki neitt (nema 1 glas kók
light)
2. Laugardagskvöldið, gekk um gólf og langaði í nammi með
júrovision, en bjó til "bingókúlur" og hlaup namm namm það var bara
mjög gott (en omg hvað ég hefði getað sokkið mér í nammi sh.., bara
af því að þetta hét júrovsion.. eitthvað bla bla )
3.Fór upp í Bláfjöll með bóndanum (hann var að skjóta blöðrur
það eru misjöfn áhugamálin), tókum krakkana með okkur og vorum með
kex í nesti, ég auðvitað fékk mér ekki neitt.
4. Fór í Húsdýragarðin með Brósa og co (og auðvitað minni
famelíu) allir fengu sér ís en æ ég vildi frekar minn ís og fékk
mér bara pepsi max
5. fór út að borða, fékk mér fahitas það var það næsta sem ég
komst DDV lega séð, ég fékk mér ekki eftirrétt, langaði bara miklu
miklu meira að fá mér minn eftirrétt heima
Þetta eru sem sagt freistingar helgarinnar og ég stóðst þær. Ein
freisting sem ég stóðst ekki það er pizzan á föstudagskvöldið
en
hún var ógeðslega góð og ég sé ekki boffs eftir að hafa borðað hana
Og svo auðvita þegar ég fór út að borða, en þar
borðaði ég ekkert sem ég má ekki borða en auðvitað borðaði ég þetta
ekki í réttu magni.
Ég hef mikið pælt í því af hverju léttingurinn hefur verið svona
hægur hjá mér eftir áramót. Eitt, ég er allaf að borða allavega 5
ávexti á dag og stundum meira
gæti verð að það hefð áhrif.
Einnig skipti ég oft út ávexti en ég er að reina að taka á
því. En ég er bara eitthvað í svo miklu átstuði oft núna og
þess vegna háma ég kanski í mig 3 ávexti á kvöldin, æ það er nú
samt betra en að detta í nammipokan, þótt að þetta þýði minni
léttingur per viku.
En núna ættla ég að far að sofa, vaknaði hálfveik í morgun og ég
nenni ómuglega að vera veik heima á morgun, er komin með sömu
hálsbólgu og sama þunga hausinn og ég var með fyrir ca 2-3 vikum
alveg óþolandi.
kv G